Ertu hrædd við að fara í myndatökur?
Þá er þetta fullkomið tækifæri fyrir þig að komast yfir þann ótta! Ég hef sérhæft mig í að taka myndir af fólki í afslöppuðu og rólegu umhverfi. Ég bý til skemmtielgar minningar með þér þar sem myndavélin er með í för, ég sting upp á pósum en ég spotta líka alltaf flottar pósur sem fólk byrjar að gera ósjálfrátt sem VIRKA!
Ég sjálfur er skíthræddur við að taka myndir þar sem ég mun myndast illa, þannig ég reyni mitt allra besta í að taka myndir af fólki sem það ELSKAR!
Þetta er ekki bara myndataka
Þetta er upplifun sem þú gleymir aldrei. Hvort sem þú vilt dekra við þig, fagna nýjum kafla eða einfaldlega skapa nýjar og skemmtilegar minningar með vinkonunum. Þá er Snjokallinn rétti staðurinn fyrir þig!
Komdu og sjáðu þig í nýju ljósi
      
  
     
Það er komið að því að setja ÞIG í 1. sæti
Þú þarft ekki að vita hvernig á að pósa. Þú þarft ekki að vera með fullkomin föt eða „vera tilbúin“. Þú mætir og við náum því besta úr þér.
Hvort sem þú vilt dekra við þig, prófa eitthvað nýtt eða fanga þína eigin fegurð… þá er þetta rétti staðurinn!
     
     
       
Veistu ekki alveg hvernig myndatöku þú ert að spá í? 🤔
Engar áhyggjur! Hér fyrir neðan eru nokkrar af þeim upplifunum sem ég býð upp á.
Skoðaðu pakkana, finndu væbið sem talar til þín og við tökum þetta þaðan. 💖💫📸
Hvort sem þú ert að leita að sjálfsöryggi, dekri, hópstemningu eða bara góðum myndum með karakter.
       
💄📸 ✨ Iconic sjút ✨ 📸💄
Verð frá 150.000 kr
Þú mætir og við tökum við.
Förðunarartisti, hárstílisti og ljósmyndari sem sjá um allt. Þú þarft ekkert að gera nema mæta og vera þú.
Þetta er dagurinn þinn og Tíminn þinn.
Við burstum burt hversdagsleikann og bjóðum þér að stíga inn í þinn eigið main character moment. Hvort sem þú vilt það dramatískt, mjúkt, edgy eða glowy þá stillum við stemminguna eftir þínu væbi og tökum þetta alla leið!!!
Hvenær fær maður annars tækifæri að líða eins og módeli?
           
😎🖤 🔥 Gellu sjút 🔥 🖤😎
Verð frá 45.000 kr
Enginn filter, ekkert makeup (Engin sminka þeas), ekkert ves.
Þú mætir eins og þú ert, og við tökum það upp á næsta level. Af því þú ert mun meira en nóg!
Þetta er fyrir gelluna sem þarf ekki glam til að vera gella. (það er samt ekki bannað að koma með makeup!)
Við náum því hráa, ekta og einstaka í þér. Þú færð að skína, á þínum forsendum og útkoman? Sturlað væb sem fangar bæði styrk og mjúkleika.
Þetta er ekki myndataka. Þetta er móment. Þitt móment.
          
🪂💘 Para sjút 💘🪂
Verð frá 45.000 kr
Þið tvö + eitt væb.
Hvort sem þið eruð á fyrsta mánuðinum eða sjöunda árinu, þá er þetta sjútið sem fangar tenginguna ykkar, á ykkar eigin forsendum. Ekki stíft. Ekki óþægilegt. Bara þið tvö, í ykkar eigin væbi.
💞 Fyrir þau sem vilja hlátur, augnsamband og ekta nánd. Með dass af main character energy 😎
👉 Valmöguleikar...💐 Hversdags Kósí - Oversized peysur, branadarar og pælingar. Þið hangið og ég mynda stemmninguna, EKTA candid!
💋
Fríða og Dýrið (boudoir) - Aðeins meiri nánd. Lítið ljós, mikill skuggi og mjög moody.
🎭
Leikaraskapur (ekki bara fyrir leikara!) - ef þið eruð alltaf að gera grín hvort af öðru og viljið fanga það á mynd, þá er þetta tilvalið sjút.
👑
Glam & glans - dressa ykkur upp og taka editorial-style myndir af ykkur.
Pör eru aldrei eins þannig ég hanna sjútið í takt við ykkur.
Slædið í DM ef þið eruð ekki viss hvaða stemming passar best 💌
      
👯‍♀️🎈 💫 BFF sjút 💫 🎈👯‍♀️
Verð frá 45.000 kr
Eruð þið alltaf að segja að það sé aldrei til almennileg mynd af ykkur saman? Eða að grammið kalli á eitthvað aðeins meira... iconic? Þá er BFF sjút eitthvað fyrir ykkur!
Leyfið mér að búa til minningar með ykkur.
Þessi myndataka er fyrir hópinn en líka hvern og einn! Af því að það er eitthvað sérstakt við að fanga tengslin ykkar saman og hvað gerir hvern og einn einstakan.
Hvort sem þið eruð bestu vinir, systkini, æskuvinir eða nýbúin að tengjast, þá er þetta sjútið þar sem stemmingin er í forgrunni og myndirnar segja söguna.
            
🥂💃 🎉 Gæsa / Steggja sjút 🎉 💃🥂
Verð frá 45.000 kr
Ein myndataka en óteljandi minningar.
Hvort sem þið viljið hlæja úr ykkur lungun í geggjuðu gríni og glensi í skemmtilegri brúðar/brúðguma myndatöku þar sem þið gerið ykkur að fíflum og ég festi það á mynd. Eða fara í dramatíska boudoir töku þar sem brúðurinn/brúðguminn er í aðal hlutverki og fær að skína sínu skærasta. þá er þetta sjútið sem slær í gegn!
Við sköpum stemmingu sem hentar ykkur, hvort sem það er með gervum, slörum og smá sprelli eða ljósi, skugga og alvöru stælum. Þetta er ekki bara myndataka! þetta er partý, gleði og sjálfsást í myndformi.
Fullkomið fyrir brúðurina/brúðguminn, hópinn eða til að merkja tímamót með dass af Væbi.
Af því að brúðkaupsdagurinn á ekki að vera eina skiptið sem þú ert stjarna dagsins.
      
📷💘 Singles sjút 💘📷
Verð frá 45.000 kr
Ein myndataka til að ná ÞÉR til baka.
Engar af þessum yndislegu manneskjum í sýnidæmunum hér komu í singles sjút, mér fannst hinsvegar þessar myndir fanga tilfinninguna sem mig langar að ná af þér þegar þú kemur í singles sjút. Þú kemur í singles sjút ef þú ert einhleyp manneskja sem langar að fagna þér sjálfri. Af því það eiga allir skilið að eiga fallega mynd af sjálfum sér!
       
🍻📸 Gaura sjút 📸🍻 (a.k.a. Bois sjút)
Verð frá 45.000 kr
Ein myndataka, óteljandi gauravæb.
Hvort sem þið viljið taka power stance í sólgleraugum og hlæja að öllu og engu með félögunum, eða fara alla leið í alpha mode með ljósið & skuggana að láta þig lúkka eins og aðalskúrk með hjarta úr gulli. þá er þetta sjút að fara að hitta í mark.
Við sköpum stemmingu sem hentar ykkur, hvort sem það er kjaftæði, bræður, bromance og bjór, eða bara til að taka myndir sem þú actually nennir að setja sem profile pic.
Þetta er ekki bara myndataka... bromance í formi mynda.
Fullkomið fyrir þig og hópinn, til að merkja vináttu, tímamót eða bara 
af því að gaurar mega líka fá flottar myndir!

        
        
Hver er þessi Snjókall ??
Alex Snær er stutta svarið, ég sérhæfi mig í að skapa einstaka upplifun í stúdíóinu mínu sem dregur út módelið sem var innra með þér allan tíman!
Ég byrjaði í kvikmyndagerð en fann mig í ljósmyndun, þar sem ég sá hvað rétt stemning og nærvera getur breytt öllu.
Ég trúi því að öll geti myndast vel, þau þurfa bara réttu aðstæðurnar og einhvern sem sér þau eins og þau raunverulega eru.
Þess vegna stofnaði ég upplifunarstúdíóið Snjókallinn, þar sem þú færð ekki bara mynd, heldur móment sem lyftir sjálfsmyndinni þinni á nýtt stig.
Hvort sem þú kemur í Iconic sjút með förðun og hár, eða bara með vinkonuhópnum í glens og gleði, þá er markmiðið alltaf það sama:
Að þú gangir út með bros, sjálfstraust og myndir sem þú elskar.
📸 Kíktu á Instagram @snjokallinn til að fá innblástur fyrir þitt sjút
💬 Eða slæd-aðu beint í dm's... ég svara alltaf með brosi :)

Back to Top