Reglur & Skilmálar fyrir myndatökur
Til að tryggja faglega og þægilega upplifun fyrir alla aðila eru hér nokkur atriði sem gott er að hafa í huga fyrir, á meðan og eftir myndatökuna.
📅 Fyrir myndatökuna
✅ Bókun & greiðsla
Tímapantanir eru staðfestar þegar greiðsla hefur borist eða samið er um greiðslu fyrir þjónustuna.
Greiðsla fyrir myndatöku þarf að vera gerð fyrir afhendingu mynda.
Tímapantanir eru staðfestar þegar greiðsla hefur borist eða samið er um greiðslu fyrir þjónustuna.
Greiðsla fyrir myndatöku þarf að vera gerð fyrir afhendingu mynda.
✅ Undirbúningur & mæting
Þér er velkomið að hafa samband ef þú vilt ráðleggingar um fataval, förðun eða annað sem tengist myndatökunni.
Ég hef aðgang að förðunarartistum og hárstílistum. Ef þú vilt bóka Hár og/eða förðun fyrir myndatökuna, láttu mig vita með fyrirvara. Auka kostnaður við hár og förðun fer eftir umfangi verkefnis að hverju sinni en það má reikna með að auka kostnaður sé um 50.000 kr.
Mættu á réttum tíma! Ef þú mætir seint skerðist tími myndatökunnar þar sem aðrar bókanir gætu verið á eftir.
Ef þú þarft að færa myndatökuna, láttu mig vita með minnst 48 klst. fyrirvara.
✅ Verð & aukakaup
Unnar myndir kosta 3.500 kr/stk með VSK.
Snjokallinn byrjar ekki að vinna myndirnar fyrr en greiðsla hefur farið fram.
Gallerí með myndum til að velja úr kemur innan 7 daga frá myndatöku, nema annað komi fram frá mér.
Galleríið þitt verður aðgengilegt í að minnsta kosti 2 ár ef þú vilt bæta við fleiri unnum myndum síðar.
📸 Á meðan myndatakan stendur yfir
✅ Andrúmsloft & leiðbeiningar
Mitt markmið er að skapa afslappað umhverfi þar sem þér líður vel. Ég leiði þig í gegnum alla myndatökuna og hjálpa þér að finna þína stemningu.
Þér er frjálst að koma með hugmyndir og innblástur fyrir myndatökuna, við sköpum þetta saman!

✅ Fylgdarmenn & utanaðkomandi myndataka
Þér er velkomið að koma með fylgdarmann ef það lætur þér líða betur. Hins vegar þarf sá aðili að virða rýmið og trufla ekki myndatökuna.
Ekki er leyfilegt að taka eigin myndir eða myndbönd á meðan á myndatökunni stendur nema með mínu leyfi.
✅ Fataskipti & tímastjórnun
Ég er með skiptiklefa í rýminu, en einnig er hægt að skipta um föt inn á baðherbergi.
Ef pakki inniheldur möguleika á fataskiptum, verður það að vera innan þess tímaramma sem bókaður var.
Ef þú vilt breyta einhverju í miðri myndatöku skaltu láta mig vita svo við getum fundið bestu lausnina innan tímans sem er í boði.
✅ Upptökur fyrir markaðsefni
Ég áskil mér rétt til að taka upp myndbönd í myndatökunni fyrir markaðsefni á samfélagsmiðla.
Ef ég fæ auka aðila í myndatökuna til að taka upp slíkt efni, læt ég þig vita fyrirfram.
Ef þú vilt koma með þinn eigin aðila til að taka upp efni fyrir markaðstilgang, þarf að láta mig vita fyrirfram.
Báðir aðilar hafa rétt á að nota efnið sem tekið er upp í myndatökunni í sínum markaðssetningartilgangi.
🖼️ Eftir myndatökuna
✅ Val & afhending mynda
Gallerí með myndum til að velja úr kemur innan 7 daga frá myndatöku, nema annað komi fram frá mér.
Unnar myndir eru afhentar innan 2 vikna frá því að þú hefur valið myndirnar þínar. Þú hefur mánuð til að velja þínar myndir ef lengri tími líður þá get ég ekki lofað skilum á unnum myndum innan 2 vikna.

✅ Endurgreiðslur & óánægja með útkomu
Ekki er hægt að biðja um endurgreiðslu á þjónustu eftir að myndatakan hefur átt sér stað.
Ef þú ert ósátt/ur með útkomu myndatökunnar, býð ég upp á annað hvort viðbótar myndatöku að kostnaðarlausu eða 50-70% afslátt af annarri myndatöku. Ég met hvor valkostur er bestur að hverju sinni.
✅ Notkun mynda & eignarhald
Ég áskil mér rétt til að nota valdar myndir í portfólíó, á vefsíðunni minni eða samfélagsmiðlum, nema við annað sé samið um fyrirfram.
Ef þú vilt halda myndunum þínum einkamálum, láttu mig vita áður en myndatakan fer fram.
Óunnar myndir eru ekki afhentar, en galleríið þitt verður aðgengilegt í að minnsta kosti 2 ár ef þú vilt bæta við fleiri unnum.
📜 Annað mikilvægt
✅ Skilningur & samþykki
Með því að bóka myndatöku samþykkir þú ofangreinda skilmála. Þeir eru hannaðir til að tryggja að myndatakan verði skemmtileg, fagmannleg og án allra óvissuþátta!
Með því að bóka myndatöku samþykkir þú ofangreinda skilmála. Þeir eru hannaðir til að tryggja að myndatakan verði skemmtileg, fagmannleg og án allra óvissuþátta!
❓ Algengar spurningar – FAQ
1. Þarf ég að kunna að pósa eða vera góð fyrir framan myndavélina?
Neibb! 😌 Það besta við að koma í sjút til mín er að þú þarft ekki að kunna neitt!
Ef þú ert óviss, þá leiðbeini ég og uppáhaldið mitt er að spegla þig þannig þú veist nákvæmlega hvað þú átt að gera. 💃📸

2. Get ég komið með vinkonu/vinkonur með mér, jafnvel í sólópakka?
Já! 🧑🤝🧑 Auka fólk er alltaf velkomið! Svo lengi sem það bætir við væbið, engum líkar við haters... 🙅♀️
Við getum líka tekið nokkrar auka myndir af þeim! 💕 Þetta er þitt sjút og svo lengi sem það gerist innan fyrrum samþykktann tímaramma þá máttu nýta það eins og þú vilt.
Psst: alltaf hægt að kaupa fleiri unnar myndir ef ykkur langar í fleiri 💥

3. Hvað ef ég veit ekki alveg hvaða stíl eða væb mig langar í?
No stress 💅 Ég er með væbbanka fullan af hugmyndum og inspo! Sendu mér línu og ég get deilt með þér allskonar pælingum. 🎨✨
No stress 💅 Ég er með væbbanka fullan af hugmyndum og inspo! Sendu mér línu og ég get deilt með þér allskonar pælingum. 🎨✨
4. Er förðun og hár innifalið í öllum pökkunum?
Ekki alltaf 💄 En ef þú vilt förðun og hár þá reddum við því. (svo lengi sem það er ekki of seint bókað 😅)
Ekki alltaf 💄 En ef þú vilt förðun og hár þá reddum við því. (svo lengi sem það er ekki of seint bókað 😅)
5. Hvað eru margar myndir innifaldar – og get ég keypt fleiri?
Ég vil að þú fáir allar þær myndir sem þú (og ég) elskar 💘
Það fer eftir því hvernig við setjum saman þinn pakka en flestir pakkarnir mínir byrja á minnst 20 unnum myndum, og síðan getur þú alltaf fjárfest í fleiri myndum, líka eftir á! 🔥

6. Hvað gerist eftir að ég bóka?
📆 Við staðfestum tíma
💄 Bókum förðun/hár (ef þarf)
🎨 Ræðum hvernig þú vilt að þitt sjút lúkki
📝 Þú færð samning → reikning
📷 Tökum myndirnar og ég sendi þér gallerí viku eftir myndatökuna.
✨ Þú velur myndirnar sem ég vinn og ég afhendi þær 2 vikum síðar

7. Fæ ég að sjá myndirnar og velja sjálf hvaða myndir eru unnar?
Já! 🙌 Eftir tökuna útbý ég gallerí með bestu óunnum myndunum og þú velur þær sem verða unnar 💖
Já! 🙌 Eftir tökuna útbý ég gallerí með bestu óunnum myndunum og þú velur þær sem verða unnar 💖
8. Hvað ef mér líður ekki vel með líkama minn eða útlit?
Það er 100% eðlilegt 🧠 Við tökum því með ró og ég leiðbeini þér þannig að þér líði vel og sjáir þig fallega 💗
Það er 100% eðlilegt 🧠 Við tökum því með ró og ég leiðbeini þér þannig að þér líði vel og sjáir þig fallega 💗
9. Get ég gefið þetta í gjöf?
Jájájá! 🎁 Gjafabréf eru til á Noona.is
… og ef þú vilt sérhannað gjafabréf? Þá græjum við það. (sendu mér bara skiló) 🔥
Jájájá! 🎁 Gjafabréf eru til á Noona.is
… og ef þú vilt sérhannað gjafabréf? Þá græjum við það. (sendu mér bara skiló) 🔥
10. Má ég deila myndunum á samfélagsmiðlum?
Já! og plís taggaðu mig 😄 @snjokallinn
(En ég er ekki með handrukkarateymi ef þú gleymir því, promise 💀)
Já! og plís taggaðu mig 😄 @snjokallinn
(En ég er ekki með handrukkarateymi ef þú gleymir því, promise 💀)
11. Getur einhver tekið upp behind-the-scenes í myndatökunni?
Já! 📸 Þú, ég eða vinkona þín! en ef þú vilt eitthvað alvöru, þá er ég með snillinga á speed dial sem get ég reddað fyrir þitt sjút. 🎥✨
Já! 📸 Þú, ég eða vinkona þín! en ef þú vilt eitthvað alvöru, þá er ég með snillinga á speed dial sem get ég reddað fyrir þitt sjút. 🎥✨
12. Hvernig virkar bókun? og er hægt að breyta dagsetningu ef eitthvað kemur upp á?
Bókun fer fram í gegnum Noona.is, Instagram DMs eða email 💌
Ef þú þarft að breyta dagsetningu, láttu mig vita með minnst 48 tíma fyrirvara og við finnum nýjan tíma 💫
Bókun fer fram í gegnum Noona.is, Instagram DMs eða email 💌
Ef þú þarft að breyta dagsetningu, láttu mig vita með minnst 48 tíma fyrirvara og við finnum nýjan tíma 💫
13. Er þetta bara fyrir konur?
Nei, öll eru velkomin í sjút til mín 🏳️🌈💕
Nei, öll eru velkomin í sjút til mín 🏳️🌈💕
14. Tekurðu líka myndir af brúðhjónapörum, fjölskyldum eða öðrum hópum?
Já! 👨👩👧👦💍 Slædaðu í dm's og við skemmtum okkur saman í sjúti 🎉
Já! 👨👩👧👦💍 Slædaðu í dm's og við skemmtum okkur saman í sjúti 🎉
15. Hvar er stúdíóið staðsett, er auðvelt að koma með strætó?
📍 Stúdíóið er á Sléttuvegi 17
🚍 Strætó stoppar rétt hjá! Ekkert mál að mæta, hvort sem þú kemur með bíll eða glæsivagninum gula 💁♂️
📍 Stúdíóið er á Sléttuvegi 17
🚍 Strætó stoppar rétt hjá! Ekkert mál að mæta, hvort sem þú kemur með bíll eða glæsivagninum gula 💁♂️